fjárlög 2027.
Herra forseti. Eins og ég sagði áðan þá stendur yfir vinna í fjármálaráðuneytinu við að skoða stóra útgjaldaflokka hjá ákveðnum ráðuneytum, til að mynda hjá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Þetta er bara eitt af því sem tekur tíma fyrir nýja ríkisstjórn að koma sér inn í. Ég veit að við erum búin að vera við völd í 20 mánuði. Þú tekur við fyrstu fjárlögunum, svo smíðarðu þau næstu og það eru ákveðnir þættir sem hafa komið upp í kerfinu, sem að hluta til komu mér á óvart, varðandi þróunina á endurhæfingu plús örorku, ef við tökum það saman. Það voru miklar væntingar um að nýja kerfið, þar sem meiri áhersla er lögð á endurhæfingu, myndi draga úr nýgenginu. Þetta er eitthvað sem við þurfum að leggjast yfir. En ég legg áherslu á að það er ekkert mikið upp úr því að hafa að festast inni í örorkubótakerfinu að óþörfu. Þetta eru lágar greiðslur til langframa og fólk sem er þarna inni er ekki þarna inni af því að það velur það.
Ég vil að lokum nefna að ég held að eitt af því besta sem við getum gert núna sé að styrkja geðheilsuúrræði. Margir af þeim sem eru að koma inn á nýgengi örorku eða endurhæfingar eru ungt fólk sem er að glíma við geðrænan vanda eða depurð og er óvinnufært vegna þessa. (Forseti hringir.) Það endurspeglast í fyrri fjárlögum og í núverandi fjárlögum ríkisstjórnarinnar.