fjárlög 2027.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu af því að það er nákvæmlega það sem þetta snýst um. Hér hafa margir komið upp og til að mynda talað um þróun kaupmáttar undanfarinna ára. Ég ætla ekki að láta eins og það séu ekki einstaklingar í samfélaginu sem ekki hafa upplifað þá kaupmáttaraukningu og hér þrífst auðvitað enn fátækt. Hér er fólk sem á ekki til hnífs og skeiðar, sem skömm er að, og það finnst okkur öllum. Það breytir því ekki að þrátt fyrir ýmislegt sem um hefur verið rætt hér í þessari fjárlagaumræðu þá liggur það alveg fyrir, eins og mikið var talað um í sumar, að Ísland er á góðum stað. Heilt yfir stöndum við vel. Það er lág skuldsetning hér. Það er lágt atvinnuleysi á alþjóðavísu. Hagvöxtur hefur verið með ágætum þó að hann hafi ekki verið uppsprengdur eins og hann hafði verið, var síðan 0% ef tekið er tillit til fólksfjölgunar. Við erum í þeirri stöðu að ef við eigum einhvern tímann að kljúfa þetta gat, sem hefur verið langvarandi frá 2019, þá er það núna. Við vitum alveg að kreppur eða niðursveiflur eða utanaðkomandi áföll geta komið aftan að okkur. Við sjáum það bara í dag ef við lítum til landa í kringum okkur sem eru ekki með jafn sterkt velferðarkerfi og við en eru að fá á sig aukna pressu vegna varnar- og öryggismála. Það eru fátækari lönd en Ísland sem nú eru að greiða hátt í 4–5% af landsframleiðslu í varnar- og öryggistengd útgjöld sem við erum ekki að gera. Við sjáum hversu hratt heimurinn gæti breyst ef öryggisaðstæður breytast eða ef utanaðkomandi ógn steðjar að okkur vegna heilsufars og annars. Í því samhengi nefni ég bara að ég hef fullan skilning á þeim erfiðu aðstæðum sem sköpuðust í heimsfaraldri. Þar var hallarekstur ríkissjóðs en hann varði bara allt of lengi og við erum komin á þann stað að við verðum að fara að loka þessu. Þetta er grundvallarástæðan fyrir því að við þurfum að loka þessu gati núna en á sama tíma styrkja þá velferð sem til staðar er í kerfinu eftir síðustu tvö ár.