fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir þessi svör og ég fagna fjárlagafrumvarpi sem setur fólkið í forgang en lætur breiðu bökin, sem lengi hefur verið hlíft, bera meiri byrðar, þó að mér finnist þær mega vera meiri. Í því samhengi vil ég bara minna á að hagnaður bankanna fyrir 2024 var 88 milljarðar og á síðasta ári 94 milljarðar. Þetta eru 182 milljarðar. Miðað við 400.000 manna samfélag eru þetta 455.000 kr. á hvern einstakling eða nær 2 milljónir á eina fjögurra manna fjölskyldu. Það er tvennt sem ég er að velta fyrir mér: Hversu miklu skiptir að lækka vaxtagreiðslur ríkisins sem nú eru um hálfur milljarður á dag? Og svo líka, af því að um þetta hefur verið rætt: Væri það réttlætanlegt fyrir bankana með þessar tekjur að velta þessum 0,25% bankaskatti yfir á neytendur?