158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[18:32]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Það gefur augaleið að það er ekki réttlætanlegt að bæta mikið lengur við skuldir ríkissjóðs nema það komi bara eitthvert tilfallandi áfall. Auðvitað vitum við ekki hvernig mál munu þróast á næsta ári, til að mynda ef aðstæður breytast ytra. Þetta hefur auðvitað verið mikil byrði á ríkissjóði en ég verð reyndar að segja að ég er sjálf á þeirri skoðun að stærsta einstaka ástæðan fyrir því að við þurfum að stoppa þennan hallarekstur er bara almennt umsvif ríkisins í þenslu. Ég er ekki það kreddukennd að ég haldi því fram að ríkið þurfi alltaf og undir öllum kringumstæðum að vera yfir núllinu. Ef það er slaki í kerfinu þá er allt í lagi að það sé undir því. En undir núverandi kringumstæðum gengur það auðvitað ekki upp. Varðandi bankaskattinn þá var hann lækkaður á sínum tíma á þeim forsendum að viðskiptavinir myndu njóta þess ávinnings. Sú varð ekki raunin. Hér er skýrsla sem var unnin fyrir ráðherra Framsóknarflokksins sem bendir réttilega á þetta. (Forseti hringir.) Þess vegna finnst mér ekkert óeðlilegt við það að maður geri þá kröfu, þegar hann er hækkaður aftur, að ávinningnum sé skilað.