158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 202.

1. mál
[18:34]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Ríkisstjórninni og hæstv. forsætisráðherra verður tíðrætt um halla síðastliðinna ára, upp á tæplega 870 milljarða. Þar af eru 570 milljarðar vegna Covid og jarðeldanna. Þá eru eftir 300 milljarðar. Af þeim 300 milljörðum á fimm árum á ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tæpa 140 milljarða á tveimur árum, svo að það sé nú sagt.

Ég hjó eftir því í ræðu hæstv. ráðherra í gær að hún sagði að við ættum að huga að stöðunni eins og hún var orðin 2024. Síðan sagði hún: Sjáið hvað við höfum gert. En hugum að stöðunni í lok árs 2024. Þá var Ísland efst á lífskjaralista Sameinuðu þjóðanna, fremst í heimi. Það er auðvitað metnaðarfullt að koma fram með það hugtak að það þurfi að laga Ísland og alveg sérstakt. Við vitum að það þarf að fjárfesta meira, m.a. í innviðum. Þá er auðvitað sérstakt að hækka kílómetragjald um 4 milljarða en skera framlög til vegagerðar niður um 4,5 milljarða. Það er mjög sérstakt. Það er líka sérstakt að lækka fjárfestingu í heild sinni undir 2% á þessum tíma, þegar við ættum einmitt að vera að fjárfesta meira.

Hæstv. ráðherra sagði líka í stefnuræðu sinni: Við höfum stöðvað stjórnlausar verðhækkanir á húsnæðismarkaði. Ég spyr: Hvernig gerði ríkisstjórnin það? En afleiðingin er sú að íbúðir seljast núna 80% undir auglýstu verði, byggingarleyfum fyrir nýjum íbúðum hefur fækkað um helming á tveimur árum og það er 27% vöxtur í atvinnuleysi í byggingariðnaði. Ég spyr: Er það til viðbótar niðurskurði á stofnframlögum í fjárlögunum eða lækkun á endurgreiðslu við eigið húsnæði sem á að hjálpa til við að byggja upp fleiri íbúðir? Er það leiðin til að laga Ísland? Er það leiðin til að laga Ísland að skera niður til vegagerðar (Forseti hringir.) en um leið hækka tekjurnar sem þeir sem greiða fyrir uppbyggingu á vegunum eiga að greiða til ríkissjóðs?