158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[18:40]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Ég legg bara áherslu á að fjárveitingin til samgangna sé skoðuð. Það er 1,6 milljarða aukning ef Hvammsvirkjunarframlagið er tekið út. Það er 6. gr. heimild fyrir Fljótagangaframkvæmd og það er verið að leita leiða til að semja við Vegagerðina um að koma Fljótagöngum af stað. Ég held að við ættum öll hér inni að vera frekar ánægð með það. Undirbúningsframkvæmdir eru að hefjast og þær verða fjármagnaðar á vakt þessarar ríkisstjórnar.

Varðandi heilbrigðismálin þá fæ ég enga sérstaka ánægju út úr því að hækka hér komugjöld á fólk sem hafa ekki hreyfst í 12 ár. Ég stend hins vegar frammi fyrir því að vera m.a. með heilbrigðisráðuneytið á minni vakt þar sem samið var um stórkostlegar hækkanir í tengslum við sjúkraþjálfun og í tengslum við sérfræðilækna sem voru ekki fjármagnaðar á vakt síðustu ríkisstjórnar. Ég veit ekki hvort ætlunin hafi verið að skera niður þjónustu eða fleyta þessum kostnaði yfir á sjúklinga en staðreynd málsins er að ekki var gert ráð fyrir fjárheimildum til að standa undir þessum samningum. Þetta er einn af mörgum veikleikum sem við áttuðum okkur á komandi inn í þessa ríkisstjórn, (Forseti hringir.) það var ekki búið að gera ráð fyrir þessu og þetta sat eftir í kerfinu. Við verðum að sinna þessu vegna þess að ekki er vilji til þess að skera niður þessa þjónustu.