fjárlög 2027.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég hef sagt áður frá því að við erum núna í samtali og erum búin að vera í virku samtali, reyndar búin að halda, ef við tökum ekki með fundi undirhópa heldur bara stýrihópa og þeirra sem eru í framlínunni á vinnumarkaðnum, yfir 20 fundi núna með aðilum vinnumarkaðarins í sumar þar sem við höfum verið að ræða hinar og þessar útfærslur, m.a. er verið að velta upp hugmyndum um gjaldaprósentur. Þetta er bara partur af því samtali sem núna er í gangi. Ég sýni því alveg skilning á því að fólk vilji sjá þessi gjöld lægri en þau eru. Það breytir því ekki að þegar kemur að kílómetragjaldinu þá finnst mér þetta sérstök afgreiðsla. Síðasta ríkisstjórn var hér búin að leggja fram fjármálaáætlun þar sem hún gerði ráð fyrir því að á árinu 2027 yrðu sérstakar greiðslur vegna ökutækja 7,5 milljarðar, ekki þeir 4 milljarðar sem við erum að leggja til. Inni í því hefði óhjákvæmilegt verið að kílómetragjald hefði verið 3,5 milljörðum hærra en okkar. Það var ekki vilji til að klára það mál. (Forseti hringir.) Það var ekki kjarkur til að klára það mál í síðustu ríkisstjórn þrátt fyrir að hún vissi að vegakerfið væri ófjármagnað, en hún var búin að lofa alls konar hlutum út á þau vilyrði. (Forseti hringir.) Við verðum að klára þessi mál, sérstaklega ef við ætlum að halda betur uppi vegagerð í landinu.