158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[18:49]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Forseti. Samfylkingin og hæstv. forsætisráðherra lofuðu að taka til í ríkisrekstrinum. Þetta var loforð sem var gefið hér fyrir síðustu kosningar. Það átti að bæta þjónustuna með því að gera hana skilvirkari. Hæstv. ráðherra lofaði líka að hækka ekki skatta þannig að mig langar bara að spyrja beint út: Af hverju er verið að svíkja þetta loforð? Svo langar mig líka að spyrja hvort hæstv. forsætisráðherra styðji jólabónusinn sem hæstv. mennta- og barnamálaráðherra hefur ítrekað sagt að muni verða greiddur hér út í desember en hann er ekki að finna í fjárlögum. Því spyr ég: Ef hæstv. forsætisráðherra styður þennan jólabónus, af hverju var ekki gert ráð fyrir honum í fjárlögunum eða er ekkert að marka þessi fjárlög? Að lokum langar mig til að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort hún hafi ekki áhyggjur af því að krónutöluhækkun upp á 5,2% gjalda verði verðbólguhvetjandi og muni auka verðbólguna, eins og gerðist síðast, og af hverju er verið að fara að gera nákvæmlega sömu mistökin aftur eða heldur hæstv. forsætisráðherra að útkoman verði önnur núna?