fjárlög 2027.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta spurningu. Ég vek athygli á því að af þeim 34 milljörðum á tekjuhlið þá mætti kannski telja um 15 milljarða sem snúa að hinu almenna heimili. Já, það eru krónutölugjöld þar inni. Í gegnum tíðina hafa krónutölugjöld meira og minna fylgt verðlagi. Já, það hefur verið samið um það í kjarasamningum að taka þau niður tímabundið þrátt fyrir að við séum reyndar ekki í kjarasamningaviðræðum núna, enda er ríkið yfirhöfuð ekki heldur beint hluti af þeim viðræðum heldur bara stuðningsaðili. En við erum að skoða þetta núna með verkalýðshreyfingunni. Það er ekkert óeðlilegt við að farið sé í krónutölubreytingar. Það hafa allar ríkisstjórnir gert í gegnum tíðina nema þegar sérstaklega er samið um það, t.d. út frá verðbólgumarkmiði.
Kílómetragjaldið er búið að vera á dagskrá í langan tíma. Það var vitað mál með niðurfellingu olíugjaldsins og tilkomu rafbíla að það þyrfti að breyta fyrirkomulaginu. Ég er alveg meðvituð um að það eru að verða breytingar þarna á þrepunum sem snúa, eins og ég sagði áður, að því að hér var innleitt kerfi samhliða kjarasamningum 2019 og samhliða reyndar miklum útgjaldaauka líka sem var ekki fjármagnaður sem gerði ráð fyrir að það yrði meiri framleiðni í kerfinu en var. Það var enginn framleiðnivöxtur á þessu tímabili. Það var ekki innistæða fyrir þessari tekjuskattsbreytingu þarna á sínum tíma þannig að það er búið að halda því sem snýr að heimilunum í algjöru lágmarki, myndi ég segja, og sérstaklega hefur verið hugað að því að þar sem er svigrúm í kerfinu á útgjaldahlið og á tekjuhlið sé litið til þeirra staða.
Ég styð jólabónus í desember enda verður hann greiddur út núna í desember og það er fjárheimild fyrir því. Það liggur alveg fyrir. Hann verður greiddur út í desember og það er bara fullur stuðningur við það.
Hvað varðar krónutöluhækkanirnar almennt vil ég samt vekja athygli á því, og ég segi það og ítreka enn og aftur, að skoðað sé það graf sem er inni í fjárlögunum sem sýnir hvaðan sú verðbólga sem hefur aukist það sem af er ári kemur. Þetta eru flugfargjöld. Þetta eru olíufargjöld. Þetta er mjög lítill hluti opinberra gjalda. (Forseti hringir.) En, eins og ég segi, við erum í samtali núna við verkalýðshreyfinguna og atvinnurekendur varðandi krónutölugjöldin.