fjárlög 2027.
Herra forseti. Já, við höfum heyrt þá skýringu frá fulltrúum ríkisstjórnarinnar að þetta sé ekki skýringin en það virðist enginn sammála ríkisstjórninni því það virðist alveg augljóst af öllum greiningum og öllum þeim gögnum sem er búið að birta að krónutöluhækkanir ríkisstjórnarinnar í fyrra voru meginvaldur verðbólgunnar. Það er alveg sama hvað hæstv. ráðherrar koma oft hér upp, þetta eru staðreyndir málsins. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra þar sem það stefnir í það að afkoman verði nú verri en þið áætluðuð á þessu ári, það er spáð yfir 60 milljarða halla. Hefur forsætisráðherra áhyggjur af því að stöðugleikareglan sé brostin? Og ég ætla að spyrja aftur því að mér þótti þetta frekar mikill útúrsnúningur áðan. Hæstv. forsætisráðherra fór í alls konar útskýringar á sköttum. Staðreyndin er sú að hæstv. forsætisráðherra lofaði að hækka ekki skatta, svo ég spyr aftur: Af hverju er verið að svíkja það loforð?