fjárlög 2027.
Herra forseti. Ég ætla bara að byrja á öfugum enda og benda fólki á útspil Samfylkingarinnar þegar kom til að mynda að atvinnumálum. Þar vorum við mjög skýr þegar kom að auðlindagjöldum. Þetta er bara okkar stefna, m.a., í Samfylkingunni. Þetta stendur í stjórnarsáttmála. Við vildum að það væru sanngjarnari auðlindagjöld þegar kæmi að fiskveiðum. Við vildum að það væri tekið upp eðlilegt gjald fyrir aðgang erlendra ferðamanna að náttúruperlum Íslands í eigu þjóðarinnar. Hér hefur fólk getað farið á þessa staði án þess að greiða sérstaklega fyrir það og þetta hefur vegið verulega til að mynda að vegakerfinu og svæðunum þarna í kring þannig að fyrir okkur er þessi gjaldtaka bara hluti af okkar stefnu og ég ítreka það sem ég sagði hérna áðan varðandi önnur gjöld.
Ef Miðflokkurinn ætlar sér að fara í ríkisstjórn og halda því fram að hún muni ekki þurfa að hækka eða breyta neinum gjöldum í verðbólgusamfélagi Íslands þá veit ég ekki hvar flokkurinn ætlar að byrja á niðurskurði í kerfunum okkar. Það liggur alveg fyrir að það hefur hver einasta ríkisstjórn þurft að hrófla við krónutölugjöldum upp að einhverju marki. (Forseti hringir.) Ég bendi fólki bara á það graf sem er í fjárlagafrumvarpinu varðandi orsakavaldinn, flugfargjöld og olían hafa stórhækkað í verði og sú aukning sem við sáum í upphafi árs var ekki úr takti við það (Forseti hringir.) sem hefur gerst í janúar en við erum samt að skoða sérstaklega þennan lið.