fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég er sammála ríkisstjórninni í því að það er mikilvægt að skila hallalausum fjárlögum þegar ekki er sérstök krísa í gangi sem kallar á útgjöld af hálfu ríkisins. Ég er sammála því að það skipti öllu máli að það sé trúverðugleiki og að það ríki ákveðið traust. Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé aðhald þegar aðhaldsstig fjárlaga á að vera 1,1%, sem er nokkru meira, eins og stendur í fjárlagafrumvarpinu, en meðaltal síðastliðinna fjögurra ára, og þegar heildaraðhaldið er upp á 44 milljarða, þar af almennt aðhald á ráðuneytin 5 milljarðar og fækkun stöðugilda hjá ríkinu upp á 3 milljarða, um 1% fjölda. Síðan eru aðrar sérstakar ráðstafanir upp á 36 milljarða af þessum 44. Þar er stærsti liðurinn, eins og stendur í fjárlagafrumvarpinu, endurmat á fjárþörf vegna fjárfestinga. Á íslensku heitir þetta: Við settum of mikið af peningum til fjárfestinga og erum að taka þá til baka. Er það aðhald? Eykur það trúverðugleika að reyna að pakka þessu inn í eitthvert aðhald sem það er ekki?
Við höfum tekið þessa umræðu og tókum hana oft í fyrra, bæði við forsætisráðherra og fjármálaráðherra, um verðbólguvæntingar og það að hækka krónutölur umfram það sem verðbólgan er, eða eins og nú á að gera í lok þessa árs. Verðbólgan er reyndar 6% núna en ekki 5,6%, ef ekki hefðu komið til eldsneytisaðgerðirnar. Þá segir ríkisstjórnin: Það er ekki þessu um að kenna. Reyndar eru, eins og komið hefur fram, einu hagfræðingar landsins sem halda því fram fjármálaráðherra og forsætisráðherra. Hefði ríkisstjórnin ekki átt að einbeita sér að þeim þáttum sem valda verðbólgunni ef það er markmiðið að reyna (Forseti hringir.) að ná henni niður, þ.e. eldsneytisverðinu sem er líka ástæðan fyrir hækkun á flugmiðum, ef þetta er svona augljóst? Hefur forsætisráðherra í alvörunni (Forseti hringir.) engar áhyggjur af því, með því að hækka krónutöluna umfram það sem allir aðilar spá að verðbólga verði á næsta ári, að það muni ekki hafa þau áhrif að Pétur og Páll og Jón og Gunna (Forseti hringir.) og Sigga sem reka fyrirtækin sín hækki líka sínar gjaldskrár um 5,5%, (Forseti hringir.) af því að það er svo nálægt 5,2?