158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[18:59]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu. Það er alveg rétt að inni í þessu er endurmat á fjárþörf og það er alveg rétt að það má alveg velta því upp hvort það sé aðhald með sama hætti og að fara í rekstur. Ég skil spurninguna vel. Ég held að hv. þingmaður viti það líka sjálfur að þetta snýst ekki bara um samdrátt heldur líka að koma í veg fyrir að útgjöld bókstaflega aukist. Það er rosaleg fjárþörf í kerfinu, sérstaklega komandi út úr tímabili þar sem við sáum yfir sjö, átta ára tímabil mestu fólksfjölgun, eiginlega bara í nútíð íslenska lýðveldisins. Þetta er mesta fólksfjölgun sem við höfum séð í Vesturheimi. Þetta eru eiginlega tölur sem sjást í Afríku, í löndunum sem eru miklu fjær okkur, m.a. vegna þess að hér var hagkerfið rekið mjög heitt á sínum tíma sem gerði það að verkum að það varð svona mikil fólksfjölgun. Það eru miklir veikleikar í kerfinu vegna þess að kerfið þandist hratt út en framleiðni var takmörkuð þannig að við þurfum að hafa okkur öll við bara til að koma í veg fyrir náttúrlega aukningu í útgjöldum. Ég segi þetta vegna þess að ég veit að þetta er ekki auðvelt fyrir stofnanir og ég veit að þetta er ekki auðvelt fyrir ráðuneyti. Það að þessi minnkun í fjárfestingarframlögum eigi sér stað segir bara hluta af sögunni.

Varðandi krónutölugjöldin þá skil ég alveg þessa umræðu. Við áttum gott samtal við verkalýðshreyfinguna og atvinnurekendur í sumar um hvort við ættum að fara í einhverja skuldbindingu þegar kæmi að þessu, m.a. að fyrirtæki myndu þá líka skuldbinda sig til að gera eitthvað svipað, og það var ákveðið að bíða með slíkt átak núna fram á haustið. Núna erum við í virku samtali við verkalýðshreyfinguna og atvinnurekendur um að reyna að ná heildrænni nálgun á verðbólguna, sem ég vona að skili árangri, en þar til við a.m.k. komumst á þann stað að við erum með sjálfbær útgjöld þarf að passa upp á þennan lið. En ég verð bara að segja að lokum: Það þarf ekki annað en að skoða þróun olíuverðs það sem af er þessu ári til þess að átta sig á því að breytingin í verðbólgu er að mestu til komin vegna þessa en það er ekki 5,6% verðbólga á Íslandi út af 0,3% hækkun á gjöldum í janúar. Það er auðvitað undirliggjandi verðbólguaukning hérna í gegnum tíðina sem er vandinn. En auðvitað þarf ríkið að passa sig.