158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[19:01]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Þetta er ekki auðvelt, það liggur alveg í augum uppi. Mér finnst það hefði verið sanngjarnara af ríkisstjórninni að viðurkenna það í staðinn fyrir að reyna að halda því fram að þau séu að gera einhverja rosalega stórkostlega hluti. Ég hef miklar áhyggjur af þessu fjárlagafrumvarpi.

En svo ég vendi nú kvæði mínu í kross aðeins og fari inn í þá málaflokka sem heyra undir forsætisráðuneytið þá eru það m.a. Þingvellir. Það er eiginlega tvennt sem mig langar að heyra aðeins nánar frá hæstv. forsætisráðherra. Annars vegar útfærsla á þessu 5 milljarða innviðagjaldi eða ferðamannagjaldi, hvernig það er hugsað. Það á að koma fram í október þannig að það hlýtur að liggja eitthvað fyrir sem hægt er að fara að skoða í þinginu. Og eins hitt, að bein framlög úr ríkissjóði til Þingvallaþjóðgarðs, sem rekur sig reyndar mikið á sértekjum, er verið að skerða um 16%, um 20 millj. kr. Þetta eru ekki háar upphæðir en 20 milljónir telja fyrir eina slíka stofnun. Það er ekki verið að hækka um 5,2%, það er verið að skerða um 16%. Getur hæstv. ráðherra eitthvað tjáð sig um það?