fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég ætla að gera stuttlega grein fyrir þeim hluta fjárlagafrumvarpsins fyrir árið 2027 sem snýr að málefnasviðum sem undir mig heyra sem utanríkisráðherra. Það eru að sjálfsögðu utanríkismál og síðan alþjóðleg þróunarsamvinna og til þeirra teljast annars vegar samstarf og samskipti við önnur ríki, öryggis- og varnarmál, utanríkisviðskipti, borgaraþjónusta og þjóðaréttur og hins vegar þróunarsamvinna og mannúðaraðstoð. Umbrotatímar sem við stöndum nú frammi fyrir kalla á öfluga utanríkisþjónustu til varnar viðskiptahagsmunum og gildum Íslands um mannréttindi og lýðræði. Niðurstaða nýafstaðinnar þjóðaratkvæðagreiðslu markar skýra stefnu um stöðu Íslands í Evrópusamstarfinu. Sú ákvörðun kallar að mínu mati ekki á minni utanríkisþjónustu heldur þvert á móti. Við þurfum af enn meiri krafti að gæta hagsmuna okkar og tryggja áhrif okkar á ákvarðanir sem varða okkur Íslendinga. Við þurfum að rækta náið samband við Evrópusambandið og einstök aðildarríki þess og höfum í huga að þangað fara um 70% af útflutningi okkar. Við þurfum að tryggja virkni og hagsmunagæslu innan EES-samstarfsins og um leið styrkja tengsl okkar við önnur lykilríki og alþjóðastofnanir vestur um haf en ekki síður til Asíu. Þetta gerist á sama tíma og alþjóðakerfið verður ófyrirsjáanlegra, öryggismál skipta sífellt meira máli og norðurslóðir og Norður- Atlantshaf eru komin í brennidepil alþjóðastjórnmála. Við þurfum eftir sem áður að vera þar sem ákvarðanir eru teknar, byggja upp bandalög, hafa áhrif áður en ákvarðanir liggja fyrir og tryggja að rödd Íslands heyrist því enginn annar, höfum það hugfast, en við munum gæta íslenskra hagsmuna fyrir okkar hönd.
Framlög til málefnasviðs 4, utanríkismála, fara úr 23,6 milljörðum í fjárlögum 2026 í rúmlega 26,6 milljarða á næsta ári. Mest vegur þar hækkun til varnarmála, um 2 milljarða kr. á föstu verðlagi eða sem nemur 18%. Þessi hækkun endurspeglar breyttar aðstæður í alþjóðamálum og aukið vægi öryggis- og varnarmála og með þessu er Ísland líka að taka aukna ábyrgð á eigin vörnum. Eins og kunnugt er stefnir ríkisstjórnin að því að Ísland verji 1,5% af vergri landsframleiðslu til varnartengdra innviða og verkefna eigi síðar en árið 2035 og jafnvel fyrr eins og ákveðið var á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í júlí í fyrra og er hér um að ræða vörðu á þeirri vegferð. Þó er rétt að nefna að varnartengd verkefni sem falla undir þetta 1,5% eru víðtækari en þau verkefni sem fram til þessa hafa verið talin til öryggis- og varnarmála og eru sum þeirra á forræði annarra ráðuneyta. Áfram er gert ráð fyrir kraftmiklum stuðningi við Úkraínu, bæði í formi varnartengds stuðnings og mannúðar- og efnahagsaðstoðar og er það skýr yfirlýsing að við stöndum með lýðræðisríkjum heimsins í baráttunni gegn árásarhyggju og árásarstríði Rússa og það fara samtals um 6 milljarðar til Úkraínu. Þetta skiptir Úkraínumenn gríðarlega miklu máli eins og kom fram á fundi mínum í gær í Keflavík með Selenskí forseta á leið sinni yfir til Kanada.
Á sama tíma er líka gert ráð fyrir að aðhaldsaðgerðir sem gripið verður til á árinu skili tæplega 400 millj. kr. hagræðingu og hún næst helst með forgangsröðun verkefna, niðurfellingu varasjóðs og samdrætti í starfsmannahaldi.
Hvað varðar málefnasvið 35, alþjóðlega þróunarsamvinnu, er gert ráð fyrir að framlög hækki úr tæplega 16,4 milljörðum í 16,7 milljarða. Með þessari hækkun er stefnt að því að útgjöld til þróunarsamvinnu haldi u.þ.b. í við þróun vergra þjóðartekna en jafnan er miðað við þær þegar framlög mismunandi ríkja eru borin saman. Það er líklegt að þetta hlutfall verði í kringum 0,33% af vergum þjóðartekjum á næsta ári sem er svipað og undanfarin ár. Það skiptir auðvitað máli að standa þarna ákveðna varnarbaráttu að mínu mati því að mörg mjög stór ríki hafa dregið úr framlögum til þróunarsamvinnu til að geta aukið útgjöld til varnarmála. Framlagi Íslands verður áfram varið til verkefna í uppbyggingu mannauðs og grunninnviða, sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda og viðbrögðum við loftslagsmálum, auk verkefna í þágu mannréttindamála og kynjajafnréttis, ekki síst með áherslu á fátækustu ríki heimsins. Þá verður mannúðaraðstoð til að bregðast við þeirri miklu neyð sem víða hefur skapast vegna átaka og náttúruhamfara, m.a. á Gaza, fyrirferðarmikil á árinu og við sjáum náttúrlega miklar hörmungar, eins og til að mynda í Nepal, sem kallar á alþjóðaaðstoð sem við þurfum líka að skoða.
Virðulegur forseti. Öryggi okkar og sjálfstæði byggist á traustu alþjóðakerfi og virðingu fyrir alþjóðalögum og friðhelgi landamæra. Við þurfum að hlúa að alþjóðlegu samstarfi og standa vörð um hagsmuni Íslands og þessi fjárlög endurspegla það.