fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra. Samkvæmt tillögu ríkisstjórnarinnar hækka framlög til málaflokksins, ekki síst til öryggis- og varnarmála. Það er jákvætt að við skulum vera farin að taka skyldum okkar og skuldbindingum í öryggis- og varnarmálum af meiri alvöru þótt ástæðurnar séu ekki af jákvæðum meiði. Sú sem hér stendur þekkir þennan málaflokk vel enda fyrrum aðstoðarmaður utanríkisráðherra Sjálfstæðisflokksins þegar alger viðsnúningur varð í áherslu á öryggis- og varnarmál, bæði hvað varðar breytta stjórnsýslu, mikla uppbyggingu á varnarinnviðum en líka stóraukin samskipti við bandalagsþjóðir, ekki síst við Bandaríkin.
Af því ég hef hæstv. ráðherra hér má ég til með að beina talinu að vinnubrögðum hennar gagnvart hv. utanríkismálanefnd. Hæstv. ráðherra hefur ítrekað gagnrýnt fyrri stjórnvöld fyrir að skrifa og senda bréf. Með leyfi forseta, þá „treysti þáverandi ríkisstjórn sér ekki til að fara fyrir utanríkismálanefnd heldur skrifaði bréf í leyni. […] Ég frábið mér svona vinnubrögð,“ sagði hæstv. ráðherra þá. Hæstv. utanríkisráðherra kom á fund utanríkismálanefndar til að ræða þjóðaratkvæðagreiðsluna. Aðspurð um hvernig hún ætlaði sér að virða vilja þjóðarinnar, höfnun á ESB-leiðangri ríkisstjórnarinnar, sagðist hæstv. ráðherra vera að skoða þau mál. Utanríkismálanefnd fékk síðan eftir á tilkynningu um að sami hæstv. ráðherra hefði sent bréf — einhver hefði nú sagt skrifað bréf í leyni — með formlegri tilkynningu frá sjálfri sér um hvaða þýðingu skilaboð meiri hluta þjóðarinnar höfðu. Hvernig stendur á þessum vinnubrögðum, virðulegi forseti? Ætlar hæstv. ráðherra að halda áfram uppteknum hætti? Eru þetta ekki einmitt vinnubrögðin sem hæstv. ráðherra hafði hvað hæst um þegar hún sat sjálf í hv. utanríkismálanefnd?