fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra og vísa aftur í hana sjálfa í fortíð og með leyfi forseta, „frábið mér svona vinnubrögð“. Ég er ósammála því að það felist engin tíðindi í þessu bréfi enda höfum við, stjórnarandstaðan í utanríkismálanefnd, óskað eftir fundi um þetta mál. Og í ljósi fyrri athugasemda hæstv. ráðherra og stærðargráðu málsins, og einmitt af því að hún upplýsti um að það hefði ekki verið tekin nein ákvörðun um framhaldið, þá myndi ég vilja óska þess að við horfðum einmitt fram á við og legðum þetta mál fyrir aftan okkur. Lokuðum þessu máli fyrir fullt og allt.
En mig langaði aðeins í síðari umferð til að brýna hæstv. ráðherra varðandi utanumhald og meðferð fjárins, varðandi gegnsæi. Mig langaði til að spyrja um tvennt ef ég næ því hérna í síðari umferð. Annars vegar út í það hvernig þetta frumvarp samræmist stefnu okkar um þróunarsamvinnu Íslands og um þróun fjárframlaga þangað og sömuleiðis út í þróun á starfsmannafjölda ráðuneytis hennar. Hvernig hefur hann þróast frá því að hún tók við utanríkisráðuneytinu?