158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[19:16]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég vil bara undirstrika að bréfið sem var sent til Evrópusambandsins, formennskulandsins Írlands og framkvæmdastjórnarinnar, tilgreinir með almennum hætti það samstarf sem þegar er við lýði milli Íslands og Evrópusambandsins og áréttar að það haldi áfram. Það er mikilvægt að hlúa að því mikilvæga samstarfi sem við höfum í gegnum EES-samninginn. Það skiptir máli að það samstarf haldi áfram og ég vil hvetja hv. þingmenn, þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins, til að standa með ríkisstjórninni í því að passa og hlúa að EES-samningnum. Það er alveg skýrt og ég vona að það sé þannig — alla vega er það þannig að ríkisstjórnin er bara að halda áfram. Það vita allir að ég var ekkert endilega glöðust með þessa niðurstöðu en ég horfist í augu við hana og vinn út frá hagsmunum Íslands og við verðum þá bara að vinna út frá þeim breytta veruleika. Ég hvet hv. þingmenn til að koma með mér í þetta varðandi þróunarsamvinnuna. Það má segja, af því að þetta er svipað og var á síðasta ári, að það hafi í rauninni verið háð ákveðin varnarbarátta, að mínu mati, fyrir þróunarsamvinnunni og við Íslendingar getum áfram með stolti nálgast þau mikilvægu málefni og erfiðu málefni sem falla undir þróunarsamvinnu.