fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Grænland er næsti nágranni okkar Íslendinga, land sem er ofarlega á baugi í umræðunni þessa dagana. Við eigum að rækta tengslin við þennan nágranna okkar vel. Ég veit að við viljum það hér inni öll sem eitt. Þessi íslenska nálgun þarf að hvíla á mjög skýrri forsendu: Ekkert um Grænland án Grænlendinga og aðkomu Grænlands er þörf í þeim málum og á þeim vettvangi þar sem ákvarðanir eru teknar um framtíð þess. Hlutverk okkar Íslendinga er að byggja upp beint og gagnkvæmt samstarf við þá á jafnréttisgrundvelli. Þar erum við í einstakri stöðu. Ég hef á undanförnum mánuðum verið í mjög þéttu samstarfi við grænlenska fulltrúa, ýmist þingmenn, fulltrúa í ríkisstjórn eða sérfræðinga þar í landi. Ég eyddi hluta sumars á Grænlandi. Við vitum hins vegar að ráðherra hyggst nýta fjármuni í fjárlögum til að auka getu til að dýpka beint samstarf við Grænland og fylgja eftir samstarfsyfirlýsingunni sem gefin var út af hálfu utanríkisráðuneytisins 2022.
Ég vil af því tilefni fá að spyrja hæstv. ráðherra: Hvaða verkefni, jafnvel tvö til þrjú, eiga að ganga þar fremst? Hvaða hlutverk sér hæstv. ráðherra fyrir íslenskar sendiskrifstofur, fyrir Alþingi og vestnorrænt og norrænt samstarf í þeirri framkvæmd til þess að efla og þétta samskipti okkar við þennan góða og stóra nágranna enn frekar?