fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Kæri hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir. Ég vil þakka fyrir frábærar athugasemdir. Ég ætla að taka þennan bolta varðandi verkáætlunina. Ég mun m.a. gera það af því að ég og hæstv. ráðherra Logi Einarsson höfum rætt mikið samskipti okkar við Grænland og ég held að það sé eitthvað sem við gætum unnið sameiginlega að og komið síðar til þingsins. Þetta er eitthvað sem gæti raunverulega skilað árangri og ýtt málum áfram á hinum ýmsu sviðum menningar, nýsköpunar, hjá okkur og náttúrlega í utanríkisviðskiptum og fleira.
Ég vil eindregið taka undir hvatningu hv. þingmanns til Grænlendinga og ég vona, ef þeir eru að hlusta, að þeir komi á Norðurlandaráðsþingið. Við Íslendingar styðjum eindregið að Grænlendingar verði fullir aðilar að Norðurlandaráði. Ég geri mér alveg grein fyrir einhverri svona togstreitu sem er meðal annarra Norðurlandaríkja sem eru fyrir í þessu fimm landa samstarfi. En það er kominn tími til þess að við tökum skref fram á við, að við horfum á heiminn eins og hann er núna (Forseti hringir.) og styðjum Grænlendinga eindregið í því að vera fullgildir meðlimir eftir breytingu á Helsingfors-sáttmálanum.