fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessar spurningar. Það er alveg ljóst, eins og ég gat um áðan, að þjóðin var spurð: Eigum við að hefja samningaviðræður við Evrópusambandið að nýju? Við vorum í þessari stöðu. Eigum við að fara þangað? Þjóðin sagði nei og þá erum við bara í sömu stöðu. Mig rekur ekki minni til þess að þessu hafi verið sérstaklega flaggað, m.a. af hálfu nei-sinna sem ræddu allt aðra hluti í kosningabaráttunni, til að mynda um fullveldi, til að mynda um sjávarauðlindir, til að mynda um mikilvægi EES-samningsins, sem ég vona svo heitt og innilega að hafi ekki bara verið notað til heimabrúks til að fá fólk á þennan blessaða nei-vagn og menn hafi kjark til þess að standa við það sem var sagt um EES-samninginn. Í því felst m.a. ábyrgð þingmanna sem eru í utanríkismálanefnd eða hafa áhuga á utanríkismálum á að standa vörð um þennan mikilvæga viðskiptasamning sem Ísland hefur gert. Þá þýðir ekki, eins og ég hef áður sagt, að umgangast þennan samning eftir pólitískri tækifærismennsku, eftir hentistefnu eða að hann sé einhver konfektkassi. Það er ekki ábyrg nálgun í alþjóðamálum og skuldbindingum sem við undirgöngumst. Þá þætti mér bara hreinna og beinna að fá það á hreint frá Miðflokknum og sumum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins að menn vilji ekki standa við EES-samninginn. Komið þið þá bara hreint fram. Það er alltaf þessi hálfvelgja. Það er alltaf verið svona að ýja að einhverju, en svo ekki. Segið hlutina hreint út: Viljið þið standa með EES-samningnum eða ekki?
Ég undirstrika að það hefur ekkert breyst. Við erum í sömu stöðu í dag og við vorum fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu og það hefur Evrópusambandið fengið að vita. Við ætlum alla vega að halda áfram en mér heyrist að stór hluti stjórnarandstöðunnar ætli að vera fastur í því sama hjólfari. Það er eins og það sé ekki hægt að tala um neitt annað. Það er bara margt sem þarf að gera og ganga í.