158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[19:34]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Eins og hv. þingmaður bendir réttilega á eru grunnstoðir okkar í varnar- og öryggismálum annars vegar aðildin að NATO og hins vegar tvíhliða varnarsamningur við Bandaríkin frá 1951. Við þurfum hins vegar að byggja áfram og það er það sem við höfum verið að gera. Við höfum verið að efla eigið öryggi og varnir með því að leggja meira af mörkum til sameiginlegra varna. Þetta kallar á virkari þátttöku í samstarfi innan NATO en ekki síður í gegnum tvíhliða samstarf við Bandaríkin. Samstarf við Bandaríkin á sviði öryggis og varna hefur verið gott á umliðnum árum en við erum líka að gera þessa tvíhliða samninga eins og við Finnland, við Noreg, við Frakkland, við Þýskaland, Kanada og líka Evrópusambandið og við þurfum að rækta þessa samninga núna fyrst við fengum ekki jáið, af því að hluti af því að fara inn í Evrópusambandið var að tengja sig við netið sem er svo öflugt hjá Evrópusambandinu í fjölþáttaógnum og fjölþáttavörnum. Árás á okkur verður ekki endilega í gegnum hefðbundna einkennisbúninga og hermenn. Ógnirnar steðja einmitt, eins og hv. þingmaður segir, að innviðunum, neðansjávarinnviðum, orkuinnviðunum okkar og fleira, og þar þurfum við að skerpa og efla samstarf okkar við aðrar þjóðir.

Ég átti líka mjög athyglisvert samtal í gær við Zelensky forseta þar sem var m.a. komið inn á að þeir hafa verið að tala við okkur eins og fleiri ríki og bjóða fram ákveðna sérfræðiþekkingu sem þeir, undir ömurlegum kringumstæðum, hafa þó náð að þróa en þeir eru einna öflugastir á því sviði innan Evrópu, þannig að við erum að reyna að klukka eins og við getum. Stærsta einstaka framlagið sem Ísland leggur NATO til hefur verið og verður áfram rekstur ratsjárstöðvanna fjögurra á Miðnesheiði, Keflavík, Bolafjalli, Gunnólfsvíkurfjalli og Stokksnesi og við þurfum að halda áfram að veita öfluga gistiríkjaþjónustu á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Við erum nýlega búin að taka á móti Belgum (Forseti hringir.) sem komu hingað um daginn og þeir ætla að koma aftur, minnir mig, í mars eða apríl. Þetta skiptir máli í stóra samhenginu og það er mikilvægt að við séum að draga fram enn meiri styrk okkar þegar kemur einmitt að þessari þjónustu (Forseti hringir.) því að við sjáum blessunarlega líka meiri fókus NATO á þessu svæði sem er því miður orðið hærra spennusvæði en áður. (Forseti hringir.) Þess vegna var mikilvægt að upplifa Norðurvíkingsæfinguna um daginn en líka samvinnu við okkar helstu bandamenn innan NATO.