fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég hjó eftir því að hæstv. ráðherra nefndi að það væri 400 millj. kr. aðhald sem m.a. væri fólgið í því að taka niður varasjóð. Þá vil ég bara minna á lög um opinber fjármál, þar er ekki aðhald að taka niður varasjóði. Það er ekki þannig. En mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um að það er gert ráð fyrir 230 millj. kr. auknu framlagi til að efla aðalskrifstofu utanríkisráðuneytisins á sama tíma og ríkisstjórnin setur ríkisstofnunum markmið um fækkun stöðugilda eða um 1%. Hvaða nýju verkefni réttlæta þessa 230 millj. kr. aukningu og hvers vegna er eðlilegt að efla aðalskrifstofu ráðuneytisins á sama tíma og aðhaldskrafa er lögð á fjölmargar aðrar stofnanir ríkisins? Og talandi um aðhald; í fjárlagafrumvarpinu er heildaraðhald 44 milljarðar. Ég held að það megi segja að ef fjármálastjóri og framkvæmdastjóri kæmu til stjórnar, eins og ríkisstjórnin er í rauninni að koma hérna til þingsins í dag, og segðu: Hérna er 44 milljarða aðhald, við erum búin að útfæra 8 milljarða en 36 byggjast á því að við ætlum að taka peninga sem ganga ekki í að byggja nokkur hús og við ætlum að bæta okkur í innkaupum hjá fyrirtækinu og við ætlum að fara í tæknilausnir sem skila skilvirkni — ef 80% af þessu aðhaldi væru óskilgreind og eitthvað væri kallað sértækar ráðstafanir þá er ég hræddur um að framkvæmdastjórinn og fjármálastjórinn yrðu annaðhvort reknir eða í það minnsta reknir heim og látnir koma aftur fyrir stjórnina með skýrari skilaboð.
Mig langaði bara að ítreka þessa spurningu um aðhaldið hjá ráðuneytinu og hverju það sætir að það sé veruleg aukning hjá aðalskrifstofu ráðuneytisins.