158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[19:42]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég vil vekja athygli á því að utanríkisráðuneytið hefur bætt við sig stórum verkefnum. Meðal annars hefur CERT-IS komið yfir. Það er alveg markvisst hjá okkur að það þurfi að efla netöryggi með því annars vegar að taka stofnunina yfir og hafa hana nærri öðrum verkefnum eins og varnarmálaskrifstofu og öðrum þáttum utanríkisþjónustunnar en líka er alveg ljóst að við höfum sett okkur þau markmið að við getum a.m.k. verið á pari við Norðurlöndin þegar kemur að netöryggismálum. Það hefur þurft að fjárfesta í því og m.a. í starfsmannafjölda en það er hlutfallsleg fækkun í heildina á starfsfólki ráðuneytisins. En ég vil sérstaklega geta þess að við erum búin að bæta við okkur CERT-IS og síðan hefur náttúrulega verið bætt í áritunardeildina eftir lagabreytinguna sem var samþykkt síðastliðið vor.

Varðandi varasjóðina þá er þetta einfaldlega miðlæg ákvörðun sem var tekin og við fylgdum henni. Hvað varðar 230 millj. kr. á aðalskrifstofu þá vil ég fyrst og síðast útskýra það með því að við erum í dag núna með formennsku í Eystrasaltsráðinu og verðum fram á næsta ár. Það hefur aukist að umfangi. Ég verð að viðurkenna að þegar ég byrjaði á þingi á síðustu öld og maður fylgdist með Eystrasaltsráðinu þegar það kom, þá fannst mér vægi þess vera að minnka. Það er að aukast núna á þeim tímum sem við erum að upplifa núna. Það er gríðarlega mikilvægt og dýrmætt að finna að það eru ekki bara NB8-ríkin sem eru þar heldur líka Pólverjar og Þjóðverjar og þeir eru að taka miklu markvissari skref inn í þetta. Þetta hefur kallað á meiri störf og meiri ábyrgð og við Íslendingar ætlum að standa okkur þar. Síðan er það auðvitað setan í mannréttindaráðinu sem lýkur á næsta ári, eftir lok næsta árs. Hún skiptir okkur mjög miklu máli. Þetta eru kannski þeir liðir sem útskýra af hverju þetta fer á aðalskrifstofuna, ekki síst með tilliti til þessa. Ég vil geta þess að við erum núna með formennsku, tókum við henni 1. júlí af Pólverjum sem sinntu henni af mikilli natni, og við þurfum að halda vel á spöðunum og ekki síst að halda þessum ríkjum nærri okkur (Forseti hringir.) þegar það er verið að kalla á aukna samstöðu vestrænna lýðræðisríkja, eins og ég segi, á þessum síðustu og verstu.