158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[19:58]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Það var ekkert virkt samtal í gangi fram að þjóðaratkvæðagreiðslu. Svo var verið að spyrja þjóðina: Eigum við að hefja samningaviðræður á ný? Þjóðin svaraði nei. (BergÓ: Það er ekki spurningin. )Þjóðin svaraði nei. Þá er ástandið bara óbreytt. Það er hins vegar alveg ljóst að ef stjórnarandstaðan vill koma með einhverjar tillögur í þessa veru þá gerir hún það. Það er hins vegar ekki meiri hluti í þinginu fyrir málinu og mér finnst það áhugavert ef stjórnarandstaðan ætlar að beina kröftum sínum í þetta í staðinn fyrir að hugsa hvernig hagsmunum Íslands er best borgið (Gripið fram í.) núna þegar við erum að fara í ýmis mál eftir þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er ákall mitt til stjórnarandstöðunnar: Komið þið í almennilega hagsmunagæslu með okkur, standið vörð um EES-samninginn, farið í það að styrkja varnar- og öryggishluta, bæði innan NATO og í tvíhliða samskiptum við hin ýmsu ríki, sem við erum að gera. Komið og horfið með okkur til framtíðar en verið ekki föst í þessum hjólförum.