158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[20:06]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég undirstrika að það er ekki létt verk að snúa við hallarekstri ríkisins. Það hefur verið hallarekstur, uppsafnaður, 866 milljarðar á síðustu átta árum. Löngu byrjað áður en Covid kom yfir okkur eins og öll önnur ríki. Agi ríkisins í dag þýðir varanlega betri kjör fyrir ríkissjóð og fyrir fólkið í landinu. Það er kominn tími til að við tökum þennan plástur af. Það verður sársaukafullt í einhvern tíma en við þurfum að gera þetta. Við þurfum að ná jafnvægi í ríkisrekstrinum til að tryggja líka velferðarþjónustuna til skemmri og lengri tíma, þannig að það sé alveg skýrt.

Ég undirstrika: Þið getið haldið áfram að vera föst í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Við ríkisstjórnin erum að halda áfram. Við ætlum að halda áfram að gæta hagsmuna Íslands á hinum ýmsu vettvöngum og munum gera það. Ég sendi í rauninni ákall, m.a. til Framsóknarflokksins, um að gera það sem raunverulega þarf að gera, og er undirstrikað af hálfu atvinnulífsins, m.a. að EES-samningurinn verði virkur. (Forseti hringir.) Það verði stuðningur í þinginu við að gera það sem þarf til að hafa hann virkan og til að við uppfyllum okkar skuldbindingar. Ég vona að menn séu ekki á harðahlaupum frá þeim skuldbindingum líka.