fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Nýjustu PISA-niðurstöðurnar eru enn eitt rauða spjaldið á íslenskt menntakerfi. 44% nemenda eru ekki með grunnfærni í lesskilningi, tæplega annað hvert barn. En þetta snýst um miklu meira en niðurstöður úr prófi. Barn sem býr ekki yfir nægilega góðum orðaforða og lesskilningi á erfiðara með að afla sér upplýsinga, túlka þær, orða hugsanir sínar, tilfinningar og skoðanir og taka sjálfstæðar ákvarðanir. Lesskilningur er ein af undirstöðum þess að geta tekið fullan þátt í lýðræðissamfélagi eins og grunnskólalög kveða á um. Við erum að tala um tæplega 2.000 börn á ári sem yfirgefa grunnskólann án þessarar grunnfærni. Ég tek undir orð ráðherra um að það séu einstaklingar á bak við þessar tölur og þess vegna skýtur skökku við að þegar fjárlagafrumvarpið er skoðað sé engin raunaukning í fjárheimildum ríkisins til leik- og grunnskólastigsins.
Hæstv. ráðherra bendir réttilega á að 380 millj. kr. nýtt framlag til námsgagna komi inn. Ég fagna því. Við þurfum miklu meira af vönduðum íslenskum námsgögnum. Frumvarpið segir líka alla söguna. Þar stendur að heildarfjárheimildir ríkisins í málaflokki leik- og grunnskóla verði 1.672 millj. kr. og taka ekki breytingum, svo ég vísi beint í frumvarpið, ekki breytingum frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum. 380 millj. kr. fyrir námsgögn og 400 millj. kr. vegna barna af erlendum uppruna, eins og hæstv. ráðherra nefndi áðan, sem er gott. En á móti falla niður 780 millj. kr. í tímabundnar fjárheimildir. Þarna stemma tölurnar. Þegar við drögum þær frá hvor annarri er niðurstaðan eitt stórt núll eins og teiknað var hér á flottum fundi fyrir ekki mörgum dögum.
Þegar 44% barna ná ekki grunnfærni í lesskilningi og hæstv. ráðherra hefur sjálfur gefið málaflokknum rauða spjaldið, hvernig getur þá svarið í fjárlögum verið engin raunaukning til leik- og grunnskólans? Ég spyr hæstv. ráðherra sem ég veit að af einlægni vill gera vel en við verðum að gera betur en þetta.