fjárlög 2027.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góðar spurningar. Ég er mjög stolt af því að segja að við erum að fara að veita samtals 675 millj. kr. í ný námsgögn, í stuðning við útgáfu námsgagna. Samanlagt eru 455 millj. kr. að fara — það fara 380 millj. kr. í grunnskólana. Námsgögn verða 455 milljónir því að við erum líka að setja 75 milljónir í námsgögn í framhaldsskólana. Svo koma 220 millj. kr. til að efla STEM-greinarnar. Við erum að fara að taka til í því og efla sérstaklega raunvísindagreinarnar, stærðfræði og þær greinar þar sem við erum mjög á eftir. Samanlagt eru þetta um 675 milljónir. Ný STEM-viðmiðunarbraut verður í samstarfi við framhaldsskóla og háskóla og stefnt er að sérstakri fjármögnun brautanna í reiknilíkani framhaldsskólanna árið 2028.
Hv. þingmaður nefnir ástandið sem hefur skapast vegna PISA og hvað við ætlum að gera til að reyna að ná utan um stöðuna. Jú, það er mjög margt og ég bind miklar vonir við að símafríið, sem við erum að fara að veita börnunum okkar, muni skipta sköpum. Til gamans get ég sagt að starfsmaður í ráðuneytinu á yndislega konu sem er kennari. Þegar hún var að undirbúa kennsludaginn sinn í fyrradag skildi hún ekkert í því hvað það var mikið fjör frammi á gangi, hávaði og læti sem hún hafði ekki heyrt áður. Hún kannaðist ekki við þennan óróa í skólanum þannig að hún fór fram og kíkti og þá voru krakkarnir hreinlega hlaupandi um að leika sér og hafa gaman saman. Þau sátu ekki undir vegg að skrolla á símanum sínum. Það er grundvallaratriði, finnst mér, og ég legg mikla áherslu á það, að börnin okkar fái frið fyrir áreiti á skólatíma þannig að við fáum að uppskera það sama og Finnar gerðu t.d. eftir hálft ár í sínum símafriði, sem var stórkostlegur árangur. Ég get fylgt þessu eftir í seinna andsvari við hv. þingmann.