158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[20:28]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. En nei, við erum sannarlega ekki að hægja á uppbyggingu hjúkrunarrýma. Það liggur alveg fyrir að við munum núna á næstu tveimur árum sennilega að opna vel á sjötta hundrað hjúkrunarrými og við höldum ótrauð áfram. Við erum að fara að byggja hér um 1.500 hjúkrunarrými, þar af 1.400 ný. Tæp 90% af þeim eru komin í ferli þannig að við munum ekki láta deigan síga. Það er markmiðið að á tíma þessarar framkvæmdaáætlunar verði enginn á bið, hvorki á heilbrigðisstofnunum né heima. Þeir einu örfáu sem á bið verða — miðað við að við tökum auðvitað inn í dæmið þá miklu fjölgun eldra fólks sem er að raungerast — þeir sem bíða eftir varanlegu búsetuúrræði á hjúkrunarheimili munu vera í svokölluðu biðrými eins og t.d. á Vífilsstöðum eða fleiri slíkum stöðum sem veita algerlega sambærilega þjónustu. En það er bjart fram undan, aldrei verið bjartara á þessari öld, það er rétt.