158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[20:35]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvarið. Ef það hefur eitthvað vafist fyrir hv. þingmanni þá erum við t.d. búin að taka út bókstafina. Það er ekki lengur þannig að B gildi 5–8 eða eitthvað slíkt. Við erum ekki að brjóta börn niður með því að gefa þeim 2 í einkunn eða 3 í einkunn. Það er bara óstaðið, þannig að við gefum þeim tækifæri til að komast upp. Þau eru stjörnumerkt og fá í raun sína greiningu miðað við sína stöðu strax og þau koma upp í framhaldsskólann og þar á að vera tekið utan um þau á þeirra forsendum. Það er aldrei svo að einstaklingur sem er stjörnumerktur og hefur hugsanlega fengið einkunnina 2, sem ekki verður sett á blaðið, — við fengum nú alltaf 1 bara fyrir að skrifa nafnið okkar á prófið í gamla daga jafnvel þó að það væri fátt um svör — hann verður algerlega tekinn í fangið og ég mun sjá til þess að svo verði. Það er mikill munur á því. Sá sem fær 5, hv. þingmaður, hefur staðið og hann fer bara inn í venjulega bekkinn sinn og er ekkert sérstaklega stjörnumerktur eða talin sérstök ástæða til þess að taka utan um hann nema það sé eitthvert eitt fag eða annað fag sem er sérstaklega óskað eftir að fá stuðning við. En að öðru leyti er þetta bara verulega fallegur dagur, hv. þingmaður.