158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[20:44]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar ræðu. Mig langar að grípa boltann líkt og fyrri ræðumaður varðandi tíu ára stúlkuna og snúa dæminu við. Mig langar að snúa dæminu við og skoða hvernig það horfir við fjölskyldu þessarar stúlku þegar þau horfa fram á 5,2% krónutöluhækkun frá ríkinu, þegar þau sjá fram á að barnabætur standi í stað og rýrni að raunvirði, þegar þrepamörk tekjuskatts eru fryst, þegar vaxtabætur hjá heimilinu falla niður, þegar komugjöld heilsugæslunnar hækka um 100%, og til sjúkraþjálfara líka, þegar lyfjakostnaður hækkar um 500 milljónir á landsmenn, þegar kílómetragjaldið hjá þessari fjölskyldu hækkar reikninginn um 16%, þegar farsæld barna — því okkur verður tíðrætt um mikilvægi þess að fara í snemmtæka íhlutun — þegar er verið að skera niður málaflokkinn um farsæld barna um 1,1 milljarð, þegar er verið að skera niður ferðasjóð ÍSÍ um 100 millj. kr., sem er forsenda þess að börn geti tekið þátt í íþróttum, að þau á landsbyggðinni geti komið og tekið þátt í íþróttamótum sem eru að mestu leyti haldin hér í Reykjavík.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvað henni finnst varðandi þessar afleiðingar á heimili fjölskyldna í landinu.