158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[20:48]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það hlýtur að vera þannig að formaður stjórnarflokks geti svarað fyrir heildarsýn ríkisstjórnarinnar þegar kemur að fjárlögum, þannig að það hlýtur að vera í lagi að fara aðeins út fyrir málaflokk hæstv. ráðherra.

Mig langaði aðeins að víkja að öðrum málum og tala um biðlista því sjaldan eða aldrei hefur biðlisti verið jafn langur eftir greiningum og öðru og hæstv. ráðherra kom einmitt inn á það í sínu máli. Mig langar að spyrja: Hverjir eru mælikvarðarnir og markmiðin þegar kemur að því að fækka á þessum biðlistum sem við viljum öll sjá? Hver eru markmiðin hjá ráðuneytinu?

Það var talað um áðan að við gætum ekki beðið eftir að sjá árangurinn af símalausum skólum því að Finnar hefðu séð stórkostlegan árangur eftir hálft ár. Nú hafa ansi mörg sveitarfélög verið í þó nokkurn tíma og lengur en hálft ár með símabann í sínum skólum. Af hverju sáum við þá ekki þann árangur skýrt núna í PISA? Og mig langar að spyrja að einu, að þegar við horfum á framhaldsskólastigið þá stendur það í stað að raunvirði, þótt nemendum fjölgi, og við sjáum að fleiri eru að sækjast í starfsbrautir, og framhaldsskólastiginu er gert að hagræða um 1,2 milljarða. Hvar birtist hin boðaða stórsókn í daglegu skólastarfi í mönnun og í stuðningi við nemendur og kennara í fjárlögum ríkisins?