fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég ætla að byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferðina og langar að nefna að ég sagði það við forvera hennar hér fyrir ári að ég teldi þetta vera mikilvægasta málaflokkinn. Ég er sammála hæstv. ráðherra í því að það á ekki að vera flokkspólitík þegar kemur að börnunum okkar og menntun. Vegna þess að hér er stuttur tími þá myndi ég óska ég þess að hæstv. ráðherra kæmi hreinlega með skýrslu um PISA-niðurstöðuna hér fyrir þingið og gæfi þingmönnum tækifæri til að ræða þær niðurstöður svo og þær aðgerðir sem hæstv. ráðherra hefur boðað eða hyggst fara í.
Virðulegur forseti. Málaflokkarnir eru margir og þeim hefur meira að segja fjölgað um einn því hæstv. ráðherra, þegar hún tók nýlega við, ákvað að taka líka með sér hjúkrunarheimilin. Ég ætla ekki að fara inn á það því það væri líka efni í margar ræður, en mig langar að spyrja hæstv. ráðherra aðeins út í það sem frá var horfið hér áðan varðandi framhaldsskólana, kafla 20.10 í frumvarpinu. Hér segir á bls. 267, með leyfi forseta:
„Nær 99% allra ungmenna innritast nú í framhaldsskóla og útlit er fyrir að óvenju stórir árgangar muni leggja stund á nám árið 2027.“
Eins og hæstv. ráðherra sagði hyggst hún sjá til þess að allir fái skólavist. En það segir líka, með leyfi forseta:
„Við vinnslu frumvarps til fjárlaga 2027 var stuðst við sömu nemendatölur og voru í fjárlögum 2026 …“ — en samt vitum við að þetta er stór árgangur — „Fyrir 2. umræðu fjárlaga 2027 verða gerðar breytingar á nemendafjöldatölum og fjárveitingum til skóla en þá liggja fyrir betri upplýsingar um skólavist nemenda í fullu námi á haustönn 2026.“
Virðulegur forseti. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hún hafi ekki þegar innsýn í þessar tölur því framhaldsskólarnir eru byrjaðir og það er búið að samþykkja skólavist þessara nemenda þannig að við áttum okkur á því um hvaða fjárhæðir ræðir því að á sama tíma hefur hæstv. fjármálaráðherra svolítið gefið fjárlagavaldinu, Alþingi, rauða spjaldið, ef við notum það orðalag, og sagt að hér megi engu breyta. Ljóst er að það vantar aukið fjármagn inn í þennan málaflokk og ég spyr hæstv. ráðherra: Hvað sér hún fyrir sér að þetta séu miklir fjármunir og hvernig mun hún sjá til þess að hægt sé að veita þá fjármuni til framhaldsskólanna?