fjárlög 2027.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir síðara andsvar. Í raun og veru er verið að gera grundvallarbreytingar í kerfi menntamála á mýmörgum sviðum, hvort sem lýtur að aðalnámskrá eða öðru, en að taka á fræðsluskyldunni okkar frá 16 til 18 ára aldurs — nei, það hef ég ekki hugsað mér að gera. Það hefur orðið mjög mikil vakning og sprenging má segja í ásókn í verknám. Þess vegna skiptir miklu máli að við skulum vera að koma til móts við það með því að stækka og efla verknámsskólana okkar þar sem skórinn kreppir víða, því miður, og aðstaða ekki nógu góð. En ég vil gefa þessum börnum þetta tækifæri. Það er ekki nokkur vafi á því. Á þessu tímabili oft, 16–18 ára, þegar við erum svolítið óörugg í lífinu og vitum ekki alveg hvað við viljum verða þegar við erum stór og höfum jafnvel ekki haft fyrir því að læra þegar við erum 14, 15 og 16, þá getur verið að komi þessi tímapunktur þar sem við göngum yfir ákveðinn þröskuld, kannski 17 ára, þar sem hlutirnir breytast, verða jákvæðari. Þá vildi ég ekki hafa það á samviskunni að hafa svipt þessi börn þeim tækifærum sem í rauninni menntakerfið okkar er að bjóða þeim.