158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[21:12]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Forseti. Hæstv. ráðherra þekkir það að vera í stjórnarandstöðu en það er ekki alls ekki þannig að við í Framsókn séum fúl á móti varðandi allt sem er gert. Við gerðum það nú bara hérna síðastliðið vor að við buðum fram aðstoð. Við lögðum það til að hér myndu allir flokkar á Alþingi taka sig saman þegar kemur að málefnum barna og ungmenna á Íslandi. Hins vegar slógu ríkisstjórnarflokkarnir hendinni á móti þeirri útréttu hendi. Menntun fyrir alla, gott og vel, það verður gaman að sjá hvernig það mun líta út og ég bind vonir við að hæstv. ráðherra sé að ræða þetta við forystu kennarasveitarinnar.

Herra forseti. Við stöndum ekki aðeins frammi fyrir auknu álagi í skólum heldur líka fyrirsjáanlegum nýliðunarvanda því að stór hópur reyndra kennara nálgast starfslok á næstu árum. Það eru ekki nægilega margir kennarar að koma inn í þeirra stað. Ég sé í fjárlögum að í markmiði 3 er lögð áhersla á nýliðun kennara. (Forseti hringir.) Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Hversu margir kennarar munu að mati ráðuneytisins láta af störfum á næstu fimm árum? Hversu margir nýir kennarar þurfa að koma inn í staðinn? Hvaða fjármagnsáætlun hefur ráðherra til að tryggja þá nýliðun?