fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. atvinnuvegaráðherra fyrir svarið. Varðandi dreifingu ferðamanna vil ég einmitt nefna og tel líka mikilvægt að horfa til flugþróunarsjóðs og hvernig hann getur stutt við beina tengingu landsbyggðarinnar við erlenda markaði. Betra aðgengi getur skapað ný tækifæri fyrir fyrirtæki og samfélög utan höfuðborgarsvæðisins og stuðlað að betri dreifingu ferðamanna. Við eigum frábæra flugvelli, bæði á Akureyri og Egilsstöðum, sem gætu nýst betur sem gáttir inn í landið. Ég trúi því svo sannarlega að þarna sé enn óplægður akur í íslenskri ferðaþjónustu enda hafa Norðurland og Austurland upp á ótal margt að bjóða fyrir ferðamenn. Hvernig sér hæstv. atvinnuvegaráðherra fyrir sér að nýta flugþróunarsjóð á næstu árum?