fjárlög 2027.
Forseti. Aftur þakka ég fyrir fyrirspurnina. Mig langar kannski að segja áður en lengra er haldið að meðal þess sem við erum að gera og lýtur að þessari áherslu á dreifðari staði þegar kemur að markaðssetningunni er að við höfum verið að efla og styrkja markaðsstofur um allt land með ákveðnum fjármunum. Það eru náttúrlega lykilaðilar fyrir okkur, að þeir taki þátt í þessari vinnu. Eins og ég sagði er ég að lögfesta flugþróunarsjóð og festa hann í sessi. Hann skiptir auðvitað miklu máli. Við höfum líka notað framkvæmdasjóðinn til að styrkja þessa staði, þessa segla hringinn í kringum landið. Ég hef fundað með erlendum flugfélögum sem hafa verið að fljúga hingað og þá til Akureyrar og hafa verið að skoða Egilsstaði. En þeirra eðlilegu sjónarmið eru líka að innviðirnir þurfi að fylgja. Þetta er því alltaf spurning um hvað við gerum. Byggjum við upp innviði til að laða að ferðamenn eða koma fjárfestingar í innviðauppbyggingu þegar ferðamenn eru farnir að koma? Þarna tel ég ríkið leika stórt hlutverk (Forseti hringir.) til að liðka fyrir og vera með trúverðuga stefnu og framkvæmd sem laðar að fjárfesta á sama tíma og ferðamenn fara að líta á þessa staði hýrara auga. Þetta er lykilverkefnið fram undan.