158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[21:41]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Forseti. Ég þakka fyrirspurnina. Eins og hv. þingmaður kemur inn á þá er þetta gjald sem sett er á notkun á þessari ferðaþjónustu en ekki í þeim skilningi gjald sem sett er á fyrirtæki. Og aftur þá er fyrirtækjunum í sjálfsvald sett hvernig þau bregðast við þegar kemur að virðisaukaskattinum. En það er auðvitað óumdeilt að fyrirhugað náttúru- og innviðagjald, eða þetta auðlindagjald sem ég er að koma með, er gjald á ferðamenn sem heimsækja umræddar náttúruauðlindir okkar og þetta er nokkuð sem er alþekkt víða um heim. Eins og ég kom inn á í fyrra svari mínu er þetta nokkuð sem mun ef eitthvað taka til í þeim gjaldafrumskógi sem hér hefur byggst upp á undanförnum árum og ferðaþjónustan hefur eiginlega þurft að svamla um í, ef svo má segja. Það liggja líka fyrir skoðanakannanir sem framkvæmdar eru hjá erlendum ferðamönnum sem sýna að þeir skilja og eru frekar meðmæltir (Forseti hringir.) því að slíkt gjald sé tekið svo fremi sem það fari í uppbyggingu á sömu stöðum. Ferðamenn finna fyrir auknu áreiti á þessa innviði okkar sem þessi fjölgun hefur í för með sér. Það er því ekki alltaf endilega jákvæð upplifun (Forseti hringir.) sem þeir fá af þessu. Ég er sannfærð um að þetta muni skila góðum árangri og verða til þess að efla verðmætasköpun í atvinnugreininni.