fjárlög 2027.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir fyrirspurnina og tek heils hugar undir það með honum að þessi atvinnugrein, eldi eða lagareldi, hefur verið eitthvað sem á síðustu árum hefur skipt sköpum, ekki síst fyrir byggðir Vestfjarða og líka Austfjarða. Hann nefnir sérstaklega og spyr um stórþörungaræktina. Ég er með slíkt mál og mun leggja það fram á næstu vikum um stórþörungarækt í sjó. Ég átti þess kost að sækja málþing á vegum Breiðar, nýsköpunarseturs á Akranesi, í liðinni viku þar sem einmitt var fjallað um þetta undir fyrirsögninni: Gull á grunnsævi, tækifæri í sjóþörungarækt. Það vakti sérstaklega aðdáun mína hve margir stórhuga frumkvöðlar víðs vegar um land eru komnir á fleygiferð í þessu máli. Og það er ekki seinna vænna að stjórnvöld komi með skýran ramma fyrir þessa starfsemi vegna þess að það sem stendur henni fyrir þrifum í núverandi umhverfi er að það gildir enginn lagarammi um hana. Við erum að tryggja það eins og við getum að við stöndum alla vega ekki í vegi fyrir þessum vaxtarbroddi sem þessi atvinnugreinin hefur alla burði til að vera og það bara innan skamms, ekki síst í þessum smærri byggðum og sveitarfélögum. Þannig að við erum að vinna með þetta.
Síðan er ég líka að kynna mál, mun leggja fram mál, sem snýr að hafeldi og það er laxeldi utan fjarða í svona stórum djúpum kerfum úti á opnu hafi, nokkuð sem fyrir ekki svo löngu var talið algerlega ómögulegt hér við Íslandsstrendur vegna sjógangs. En tækninni fleygir fram og þetta er orðið eitthvað sem margir áhugasamir vilja fara að skoða. En þá þarf líka lagaramminn að vera til staðar og við þurfum að tryggja að það sé eitthvað til sem heitir rannsóknarleyfi og að það geti síðan leitt til einhvers og að þeir sem eru til í að leggja gríðarlega fjármuni í að skoða þetta, (Forseti hringir.) fái eins og hægt er einhvers konar tryggingu fyrir því að það verði eitthvað úr því. Þetta eru þessi tvö stóru verkefni sem ég treysti á að ég fái stuðning fyrir, stuðning til að tryggja að þessi umgjörð verði til (Forseti hringir.) samhliða uppbyggingunni en að við sitjum ekki eftir af því að það getur valdið skaða.