158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[21:50]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Mig langar til að byrja á að þakka hæstv. atvinnuvegaráðherra fyrir gott samtal hér í kvöld og margar gagnlegar spurningar hafa komið fram nú þegar. Mig langar til að beina sjónum mínum að ferðaþjónustunni, þessari ótrúlegu grein sem hefur sannarlega fært líf í sveitir landsins og hefur þann ótrúlega eiginleika að það eru svo margir sem hafa tekið þátt í uppbyggingunni, margir litlir aðilar en líka stærri. Þetta er svo fjölbreytt flóra sem á mikla hagsmuni þarna undir. Við vitum af því að ferðamannafjöldi hefur fimmfaldast frá 2007, fimmfaldast, og bara á undanförnum árum hafa gríðarlega margir verið að leggja undir í fjárfestingu, við húsakost, til að undirbúa sig fyrir áframhaldandi vöxt.

Við sjáum í þessu frumvarpi mikla breytingu á ýmsum póstum er varðar kostnað sem lendir á ferðamönnum. Þetta er í raun og veru breyting sem er ekki gerð með miklum fyrirvara á grein sem þarf stöðuga umgjörð og ég held við séum öll að vinna að því sama, að hún sé með stöðuga umgjörð. Mig langar því til að spyrja hæstv. ráðherra: Gerði hæstv. ráðherra og hennar ráðuneyti einhvers konar áhrifamat eða næmnigreiningu á því hvers kyns áhrifa kynni að gæta af þessari breytingu? Ef svo var, eru einhver viðbrögð í farvatninu ef við munum sjá samdrátt eða einhvers konar planað samtal um það hvernig við ætlum að snúa bátnum við? Þetta er svo ótrúlega viðkvæmt jafnvægi, alveg eins og við sáum með skemmtiferðaskipin. Það getur verið erfitt að snúa aftur við (Forseti hringir.) þegar við erum búin að taka ákvörðun um gjaldtöku eins og var gert í því tilfelli þannig að mig langar til að heyra þetta frá hæstv. ráðherra.