158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[21:52]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir mjög góðar spurningar og áframhald af mjög góðri og dýrmætri umræðu hér um ferðaþjónustu almennt. Ég tek heils hugar undir að eitt af því fjölmarga sem gerir ferðaþjónustu svo skemmtilega er að þar starfa alls konar aðilar, lítil fyrirtæki, stór fyrirtæki, ungir aðilar, nýir aðilar, ný fyrirtæki, gömul fyrirtæki o.s.frv., hringinn í kringum landið. Ég nefni það svona í framhjáhlaupi, af því að við höfum stundum átt samtöl um landbúnaðinn, að eitt af áhugamálum mínum er að tengja þessar tvær atvinnugreinar svolítið saman. Ég heyri það á ferðamönnum að þeir hafa áhuga á því að kynnast landi og þjóð og það sama á við um svokallaða menningarferðaþjónustu þannig að þó svo að ferðamenn komi hingað til að kynnast náttúrunni okkar, okkar einstöku náttúru, eigum við alveg fleiri ása uppi í erminni. En það er önnur saga.

Hv. þingmaður spyr eðlilega um það hvað við höfum unnið til þessa með næmnigreiningar og án þess að virðisaukaskatturinn sé á mínu borði er það þó þannig að þar koma áform fram í fjármálaáætlun í vor. Það er fyrirvarinn. En þegar kemur að þessu náttúru- og innviðagjaldi, til viðbótar við það að vera einfaldlega í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, þá hefur, ég held að það sé bara rétt að segja undanfarin ár, átt sér stað vinna með ráðuneytinu og hagsmunaaðilum í ferðaþjónustu. Sú vinna stendur enn yfir þannig að þar eru menn meðvitaðir um þessi mál algerlega niður í smæstu atriði, ég held að ég geti sagt það a.m.k. um þessa helstu hagsmunaaðila, en málið er auðvitað ekki komið fram enn þá. Síðan er það með þetta mál eins og öll önnur að við sjáum ekki allt fyrir. Hv. þingmaður nefnir hér t.d. gjaldið á skemmtiferðaskip, sem var reyndar ári seinna lækkað verulega, þannig að auðvitað er sú vegferð líka til og þó að gárungarnir segi að skattur eða gjöld sem sett eru á séu aldrei tekin til baka er það ekki alveg svo. (Forseti hringir.) En þetta þurfum við alltaf að vera með í huga. Við þurfum að gæta að því. En mótvægið eru markaðsherferðir og mótvægið er sá ávinningur sem næst með hallalausum fjárlögum (Forseti hringir.) til þess að fá verðlagið niður. Það þarf engin náttúru- og innviðagjöld í dag til þess að ferðamenn fölni hér yfir verðlaginu. Það er bara almennt verðlag í verslunum sem kemur til vegna fjármagnskostnaðar þeirra sem þar vinna.