158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[21:56]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Forseti. Aftur þakka ég fyrir góða spurningu og er farin að hlakka til samtalsins þegar náttúru- og innviðagjaldið verður hér til umræðu. Stutta svarið er þetta: Við erum að horfa til þess að draga úr þessari flækju sem núverandi staða er með gjöldin en það leysir ekki vandann alveg. Nú kem ég að öðru sameiginlegu áhugamáli okkar; hvernig jarðalögin eru og hvernig staðan er með mismunandi eignarhald á hinum ýmsu áfangastöðum í ferðaþjónustu. Ríkið hefur eitthvað um það að segja, með þá staði sem eru í eigu ríkisins en gjaldtaka annars staðar, þannig að einhvers staðar í framtíðinni væri óskandi að allir aðilar gætu unnið saman með einhverja tækniútfærslu á því til að einfalda málið fyrir ferðamenn. Það er lykilatriði. En við erum að byrja á þessu skrefi sem eru staðir í eigu okkar, þ.e. ríkisins, og við berum ábyrgð á. Markmiðið þar er að tryggja, efla og styrkja innviðina og það er sannarlega markmiðið að einfalda þetta en ekki bæta á þennan gjaldtökufrumskóg. Við erum að einfalda þetta eins best og við getum. (Forseti hringir.) Ég tek hins vegar undir það, eins og ég sagði áðan og hv. þingmaður er mér sammála, að verkefnið hefur ekki orðið einfaldara frá því fyrir tíu árum þegar það þótti of flókið að koma því í framkvæmd, það er bara þannig. (Forseti hringir.) Nú er það hins vegar gersamlega nauðsynlegt.