158. löggjafarþing — 3. fundur, 10. sept. 2026.
fjárlög 2027.
1. mál
Herra forseti. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra, sérstaklega í ljósi þeirrar umræðu sem hér hefur átt sér stað og þeirra spurninga sem fram hafa komið frá ýmsum þingmönnum er varða mjög svo aukna skattheimtu og gjaldtöku í ferðaþjónustu: Er hæstv. ferðamálaráðherra sáttur við með hvaða hætti ferðaþjónustan er trakteruð í þessu fjárlagafrumvarpi?