fjárlög 2027.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og auðvitað er markmiðið að stækka kökuna og það á við um velflestar atvinnugreinar. Ég held að það megi fullyrða að sú kaka verði ekki síst stækkuð með því, aftur, að stemma stigu við vöxtum og verðbólgu sem stuðla að háu verðlagi, sem er stærsti einstaki þátturinn í því að ferðamenn hugsa sig um að koma til landsins. Það er staðreyndin, verðlag almennt. Ég hef farið yfir það hér, og mun gera betur þegar frumvarpið kemur fram, að náttúru- og innviðagjaldið er að mínu mati til þess fallið að efla ferðaþjónustuna frekar en að draga úr henni. Og þá erum við kannski búin að flysja utan af því sem ég held að hv. þingmaður sé að ræða og það er virðisaukaskatturinn á baðlónin, sú ákvörðun að hætta að hafa þennan hluta ferðaþjónustunnar, sem hefur verið að springa út og er gríðarleg eftirspurn eftir, í afsláttarhluta virðisaukaskattsins (Forseti hringir.) og færa hann upp til jafns við það sem aðrar atvinnugreinar greiða. Hvort það eitt og sér sé til þess fallið að stækka ferðaþjónustuna — ég er ekki með spádómshattinn á mér (Forseti hringir.) og átta mig ekki á því en ég held að ég treysti mér til að fullyrða að heilt yfir ráði atvinnugreinin við þetta. Þetta er á pari við það sem aðrar atvinnugreinar og ferðaþjónustan í löndunum í kringum okkur er að greiða. (Forseti hringir.) Síðan verðum við auðvitað bara að fara yfir þessi mál og skoða reynsluna.