158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[22:11]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir fyrirspurnina. Við erum komin í landbúnaðinn og það er vel. Það er rétt hjá hv. þingmanni að það er ekki stórar breytingar á þeirri atvinnugrein að sjá í fjárlagafrumvarpinu og nærtæk skýring er sú að að öðru óbreyttu renna búvörusamningar út núna um komandi áramót. Í ljósi þess að það urðu ríkisstjórnarskipti á viðkvæmum tíma fyrir endurnýjun þeirra vinnu við starfsumhverfi landbúnaðarins, þá var farið í það af hálfu atvinnuvegaráðuneytisins og forystu Bændasamtakanna að framlengja búvörusamningana um eitt ár. Það er frumvarp sem ég hef þegar kynnt og verður tekið fyrir núna á fyrstu dögum þingsins, vona ég, þ.e. að búvörusamningar verði, óbreyttir, framlengdir um eitt ár. Með öðrum orðum, það verða engar stórkostlegar breytingar og þar af leiðandi endurspeglast sú staða í fjárlagafrumvarpinu. En við erum á fleygiferð í vinnu við að útfæra nýtt kerfi fyrir starfsumhverfi landbúnaðar og þegar það klárast mun þess sjást stað í næstu fjárlögum í raun og veru, hver sem niðurstaðan verður en einhverjar breytingar væntanlega. Það er kannski stóra málið.

Það er auðvitað rétt sem hv. þingmaður nefnir og ég tek undir það, við vitum hver þessi verkefni eru og í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á nýsköpunina, það er talað um nýliðun og kynslóðaskipti og það er talað um loftslagsmálin og auðvitað eru jarðalög stór hluti þar líka. Þetta spilar allt saman. Og af því að við höfum verið að ræða svo mikið um ferðaþjónustu þá er það t.d. eitt sem við þurfum að taka inn í og ég vænti mikils af samvinnu við hv. þingmann og að fá að njóta sérþekkingar hennar þar. Staðreyndin er auðvitað sú að bestu jarðirnar okkar eru bestar í öllu, þær eru oft og tíðum besta landið til búrekstrar en þær eru líka besta landið (Forseti hringir.) fyrir ferðaþjónustu o.s.frv. Þetta er svona stóra verkefnið fram undan en þessi vinna er sem sagt á fullu og veturinn fer í það.