fjárlög 2027.
Forseti. Aftur þakka ég hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og er þakklát fyrir hvatninguna varðandi hafeldið og þörungaræktina. Þetta er alveg rétt. Við þurfum að ná utan um starfsumhverfið og styrkjaumhverfið í landbúnaði til að efla hann og ná fram þessum markmiðum sem ég held við deilum öll. En mér finnst líka mikilvægt að við höfum það í huga að helmingur þess stuðnings sem fer í þessa atvinnugrein kemur úr vasa heimila landsins í formi tollverndar þannig að heimili landsins eru líka aðilar að þessu samtali að mínu mati. Við þurfum einhvern veginn að ná samkomulagi um það hvernig við tryggjum fæðuöryggi okkar, hvernig við eflum fæðuframleiðslu og hvernig við nýtum okkur akkúrat þessa atvinnugrein til að tryggja byggðafestu, hafa öflug bú á hverju strái, ef svo má segja. (Forseti hringir.) En það skiptir máli hvernig það er gert og það er verkefnið.