158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[10:51]
Horfa

Snorri Másson (M):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir umfjöllun hans um þessi málefnasvið sem eru mörg hver auðvitað einhver þau allra mikilvægustu á sviði stjórnmálanna að mínu mati. Hér er af ýmsu að taka og vonandi fáum við tækifæri til að ræða hvað eina út frá ýmsum sjónarhornum. Fjölmiðlarnir eru auðvitað á forræði hæstv. ráðherra og þar er verið að bæta í útgjöld um nokkur hundruð milljónir, 8% aukning á meðan aðrir flokkar fá 5%. Einhverjir nefna 2,5% sem æskilega aukningu í takt við verðbólgumarkmiðin en 8% eru hér gefin. Það sendir ákveðin skilaboð um áherslu stjórnvalda að gefa í á sviði útgjalda til fjölmiðlunar. Mestallt fer eftir sem áður til Ríkisútvarpsins þar sem starfar núna vel á þriðja hundrað manns. Margt af því auðvitað ágætir blaðamenn, annað, já, í sumum tilvikum, pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera eða í raun og veru almenningi sem er í nauðungaráskrift að fyrirbærinu. Er það mat hæstv. ráðherra að það sé raunverulega ekki hægt að gera þá kröfu til Ríkisútvarpsins, t.d. sem og annarra stofnana, að hagræða í sínum rekstri, að skoða þessi hundruð manna sem þarna vinna og þau verkefni sem þau sinna og virkilega fara í kjölinn á því hvort ekki sé hægt, í takt við þróun samfélagsins og í takt við það að aðrir eru að herða sultarólina, að skoða hvort það sé ekki hægt að gera ákveðnar breytingar á verkefnum? Eða er þetta bara einfaldlega stefnan að gefa í, fulla ferð á sama tíma og einkamiðlar í samkeppni við ríkisbáknið deyja drottni sínum? Eru þetta ekki undarleg skilaboð?