fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Það er rétt að það er aukning í fjölmiðlun og auðvitað endurspeglar það áherslu ríkisstjórnarinnar vegna þess að við höfum aldrei lifað á tímum þar sem vandaðir, ritstýrðir og hlutlægir fjölmiðlar gegna stærra hlutverki þegar kemur t.d. að vernd lýðræðisins, svo ég verði nú bara dramatískur. Allir fjölmiðlar, bæði einkareknir fjölmiðlar og ríkisfjölmiðillinn, eru saman í baráttu við nýmiðlun af ýmsu tagi, við útflæði af auglýsingatekjum til samfélagsmiðla. Við munum leggja áherslu á það í nýjum þjónustusamningi, sem við erum að hefja vinnu við og tekur gildi 1. janúar 2027, að skilgreina hlutverk Ríkisútvarpsins, ekki sem samkeppnisaðila einstakra einkamiðla heldur sem hluta af sameiginlegri varðstöðu innlendrar ritstýrðrar fjölmiðlunar gagnvart umheiminum. Þetta eru öll lönd meira eða minna að glíma við líka. Þar mun alveg örugglega verða hnykkt á ýmsum hlutum og beint til Ríkisútvarpsins að nýta t.d. tækni og aðra kosti til þess einhvern veginn að hagræða í sínum rekstri.
Ég tek ekki undir orð hv. þingmanns að öðru leyti um dylgjur, vil ég kalla það, um einstaka starfsmenn Ríkisútvarpsins. Ég þekki þau ekki, nema bara stofnunina sem heild, ekki einstaklingana sem þar vinna. En það má minna á það að Ríkisútvarpið, ríkisfjölmiðillinn, nýtur gríðarlega mikils trausts, 65% trausts, sem er töluvert meira en í garð þessarar stofnunar, t.d. Traust er einfaldlega það mikilvægasta sem fjölmiðill hefur og þess vegna væri það mjög góð brýning til allra fjölmiðla, Ríkisútvarpsins og annarra, (Forseti hringir.) að vera með minnisblað uppi á vegg um að muna að það er besta markaðsátakið, að efla traustið.