158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[10:59]
Horfa

Jónína Björk Óskarsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra fyrir yfirferðina. Mig langar að beina sjónum mínum sérstaklega að nýsköpun og rannsóknum og því hvernig við getum nýtt nýja tækni til að bæta þjónustu við fólk. Við stöndum frammi fyrir miklum áskorunum í heilbrigðis- og velferðarkerfinu. Þjóðin er að eldast, eftirspurn eftir þjónustu eykst og víða er skortur á starfsfólki. Þar geta nýsköpun og gervigreind gegnt mikilvægu hlutverki, ekki eingöngu sem leið til að skapa ný tækifæri heldur einnig til að bæta þjónustu, auka skilvirkni og létta álagi af starfsfólki. Til þess að slík nýsköpun skili sér í raunverulegum umbótum skiptir máli að háskólar, heilbrigðisstofnanir, fyrirtæki og stjórnvöld vinni saman. Við eigum öflugt rannsókna- og háskólasamfélag og þar liggja mikil tækifæri til að koma rannsóknum og góðum hugmyndum hraðar í framkvæmd. Í þessu sambandi langar mig sérstaklega að nefna þjónustu við eldra fólk. Þar getur ný tækni skipt miklu máli, m.a. með lausnum sem geta gert fólki kleift að búa lengur heima.

Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig sér hann fyrir sér að nýsköpun, gervigreind og önnur ný tækni geti nýst til þess að bæta heilbrigðisþjónustu, létta álagi af starfsfólki og um leið styðja við lausnir sem gera eldra fólki kleift að búa lengur heima og auka öryggi og lífsgæði þess?