158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[11:01]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Á öllum peningum eru tvær hliðar og svo er líka með svona stórkostlega tækni eins og gervigreindina. Hún felur í sér alveg ótrúlega möguleika en hún felur líka í sér hættur sem við þurfum að passa og við þurfum að feta eitthvert einstigi þarna. Hér var nefndur áðan forstjóri hjúkrunarheimila sem hefur talað mikið fyrir velferðartækni og ég held að það sé alveg rétt að hún getur nýst alveg gríðarlega mikið til þess að létta álagi líka af starfsfólkinu vegna þess að þetta eru gríðarlega þung störf, að vinna sem umönnunaraðili. Það fer ekki bara betur með gamla fólkið á hjúkrunarheimilunum heldur líka starfsfólkið sem vinnur þar þannig að þar er auðvitað til mjög mikils að vinna. Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni að okkur mun takast að gera fólki mögulega kleift að búa lengur heima og það felst alveg ótrúlegur aurasparnaður í því. Víða um heim er farið að nota tölvuna, tölvutæknina, skjái og gervigreindina til að vinna gegn einveru og öðru slíku. Þetta er allt mjög gott og við eigum að skoða þetta. En aftur að þessum tveimur hliðum. Það er alveg jafn mikilvægt að muna að það þarf að vera jafnvægi þarna á milli vegna þess að sem betur fer erum við mannskepnan algerlega háð því líka að eiga samskipti við aðra menn og mannleg nánd skiptir ekki síður máli núna en áður. Það eru ótal tækifæri til þess að gera þjónustuna ódýrari, gera hana betri, létta undir með umönnunaraðilunum, létta fyrst og fremst undir með auðvitað gamla fólkinu. En í þessu eins og öðru verðum við að gæta að þessu jafnvægi vegna þess að það kemur ekkert í staðinn fyrir manninn, sem betur fer.